Dr. Valdís Ingibjörg Jónsdóttir, talmeina- og raddfræðingur, er í eins manns herferð, eins og Don Kíkóti forðum daga.
Fyrir hverju? Jú, bættri raddheilsu þjóðarinnar. Og mun ekki unna sér hvíldar fyrr en hún hefur náð eyrum ráðamanna og röddin verður skilgreind sem lýðheilsa.
Valdís Ingibjörg Jónsdóttir talmeinafræðingur er ósátt við að fólk sé hvatt til þess að öskra í nýlegri auglýsingaherferð Íslandsstofu. Það geti skaðað raddböndin, jafnvel óbætanlega. „Þú getur skemmt í þér röddina eins og allt annað í líkamanum.“